Skilmálar og reglur
Ferli
Villimey slf. afgreiðir pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir þær vörur sem pantaðar eru. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu með tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Villimeyjar slf.
Afhending og sendingakostnaður
Þegar þú pantar á Villimey.is sendum við pöntun þína með Íslandspósti hvert á land sem er, burðargjald greiðist við pöntun vöru, samkvæmt verðskrá Íslandspósts. Viðskiptavinir erlendis greiða burðargjald samkvæmt verðskrá Íslandspósts.
Greiðslur og öryggi við pantanir
Hægt er að greiða pantanir með greiðslukorti.
Villimey þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Viðskiptavinur velur vöru á vefsíðunni Villimey.is og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á Greiðslusíðu Valitor þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram.
Greiðslusíða Valitor tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina Villimeyjar eru meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.
Greiðslusíða Valitor hefur hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun. Alþjóðlegu greiðslukortafyrirtækin gera í dag þá kröfu að öll fyrirtæki, sem meðhöndla, vista, senda eða móttaka greiðslukortaupplýsingar, vinni í samræmi við kröfur PCI staðalsins.
Netverð
Öll íslensk verð á Villimey.is eru með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að vöruverð á Villimey.is getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Skilaréttur
Vísað er til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við leggjum áherslu á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt og áframsendum ekki netföng né annað sem tengist viðskiptavinum.